|
†Halla Margrét†
Fyrir 1207 dögum
†18 ára†
|
30.06.2011 22:38:57 / kitty
Löngu tásurnar mínar komu upp í conversation-i í vinnunni í dag haha...mér var hugsað til the whole "mælum á okkur útlimina með reglustiku....in BED-thing!" þegar við komumst að því að þrátt fyrir að vera í sömu skóstærð þá var ég með cm stærri tær en þú, litla krútt 
Ég var líka að horfa á Love Actually um daginn...þeir sem þekkja þeir brosa eflaust þegar þeir heyra "I feel it in my fingersss, I feel it in my toooooees" haha 
Hliðin upp í bústað hafa líka komið ansi oft upp haha og þegar við vorum að gera grín af göngulaginu hennar Sóleyjar...hardest I've laughed. IN MY LIFE haha! 
..Æjj hvað ég sakna þín litli fallegi aulinn minn ;*
»
20.10.2010 15:30:28 / kitty
Til hamingju með afmælið engillinn minn;* Vildi óska þess að við hefðum geta gert eitthvað gaman til að halda upp á þetta saman. Ég veit að þú verður með okkur í kvöld :* -kitty
»
21.09.2010 10:47:57 / kitty
Ég sakna þín ástin mín x milljón og ég veit þú ert búin að hjálpa mér að taka eitt skref í einu í gegnum árin. 4 ár, pældu í þessu...maður er nú búin að breytast ekkert lítið á þessum tíma. Ég þakka guði á hverjum degi fyrir að hafa fengið þann heiður á því að kynnast þér ástarengillinn minn og ég hef sko rekist á það að góðar vinkonur vaxa sko ekki á trjám. Þú mátt alveg eiga það að hafa verið límið í vinahópnum og náð að halda okkur stelpunum saman og ég veit ekki hvar ég væri í lífinu ef það væri ekki fyrir þessar ástir;*Eins og þú veist er sko margt búið að ské þetta árið; búin að vaxa upp úr fyrri mistökum, búin að losa mig við skuggana í lífinu og reyni að lifa eins góðu lífi og það býður upp á. Og eins og í "gamla daga" þá trúum við ekki á eftirsjár því what doesn't kill you, makes you stronger og það er einmitt það sem hefur skéð. Maður eru farin að passa sig hverjum maður treystir og hverjum ekki, dýfir litlu tánni útí laugina áður en maður hoppa útí og tekur sínar uppáhalds sko ekki sem sjálfsagðan hlut. Fyndið, þegar maður lýtur til baka, hvað maður sér röngu vegina sem maður gekk greinilega, þegar at the time virtust þessar leiðir vera þær réttu en eins og við segjum...mistök eru til þess að læra af þeim. Ég þakka þér fyrir að færa mér nýja og góða vini sem eru trustworthy. Þau hafa hjálpað mér með mín mál alveg meira en ég, meira að segja, geri mér grein fyrir. Ég þakka þér fyrir að styðja við bakið á mér og halda utan um mig þegar ég þarf á því að halda og ég þakka þér fyrir að ná að halda mér á jörðunni síðan það sem gerðist fyrr á árinu. Þetta tekur á og ég skil núna hvað þú áttir við. Það að elska og að vera ástfangin er ekki það sama en það er enn mín skoðun að vinaást verður alltaf sterkari þó að elskendur hafi alltaf meiri hita á milli sín og einmitt þessvegna er þetta enn pínu sárt. Þó maður sé alveg kominn yfir þetta skref þá hugsar maður alltaf til baka, sér eftir vininum sem maður var að missa og slær sig í höfuðið fyrir að hafa ekki bara þroskast aðeins fyrr. Nú dreifi ég ekki fríjum fyrirgefningum hingað og þangað eins og smáauglýsingum lengur. Maður lýtur nú samt bara í fortíðina og hlær af þessu því þetta er það langt aftur, það mikið búið að ské síðan þá og maður sjálf orðin allt öðruvísi; betrumbætt if you will. Nú á okkur ekki hver sem er skilið. Ég elska þig ástarengillinn minn;*http://www.youtube.com/watch?v=Unuc_uMZXu4
»
12.11.2008 06:39:34 / kitty
Ég elska þig og sakna þín svo mikið Halla. Ég myndi ekki breyta neinu...myndi ekki taka neitt til baka...því milli okkar gerðist ekkert slæmt...ég þakka Guði á hverjum degi fyrir að hafa leyft mér að kynnast þér svona vel. Ég þakka Guði fyrir að hafa leyft Mér...jafn ómerkileg og ég er...að vera besta vinkona Þín..! Mér finnst skrítið að þekkja fólk sem þekkti þig ekki því þú ert svo stór partur af mér...ef ekki væri fyrir þig þá væri ég ekki manneskjan sem ég er í dag. AFHVERJU ÞURFTIRU AÐ FARA SVONA FLJÓTT!? þetta er svo óréttlátt! Afhverju fór ég frá þér þegar þú þurftir mest á mér að halda, ég hefði verið þarna hjá þér 24/7 hefði ég ekki átt flugmiðann og hefðu læknarnir sagt okkur hversu alvarlegt ástandið var í alvörunni...! Mér var sagt að þú hefðir ekki einu sinni hryggbrotnað...mér fannst ekkert sjálfsagðara en að þú myndir vakna aftur. Þetta var svo gjörsamlega Ó-TRÚLEGT að einhvað svona myndi gerast fyrir þig, æðislegustu vinkonu sem nokkur stelpa gæti hugsað sér. Við bjuggum meira að segja til "láttu þér batna" plaggat...því auðvitað áttiru eftir að vakna! Vikan eftir slysið er í algjöru blurri í minningunni. Ég man eftir að fara í síðasta stærðfræði tímann, Ögmundur sagði eitt orð "Hallatala" og ég hljóp út og hélt að heimurinn myndi sko enda þar...það var ekki hægt að sitja einn og horfa á autt sætið við hliðina á sér án þess að tárast. Ég gleymi aldrei svipnum á stelpunum þegar ég labbaði inn um dyrnar á skólanum daginn sem skólinn fékk fréttirnar. Áhyggjurnar voru svo miklar og hjartað hætti ekki að slá á hundrað. Það gat enginn setið kurr og ég man ekki eftir að hafa mætt í tíma í marga daga eftir þetta. Ég hætti í stærðfræði, ég hætti í þýsku, ég hætti í rækta líkamann því við vorum nú bara tvær einar í þeim kósý-tíma...nudda rassinn á hvorannarri með körfubolta mannstu? Það voru svo margir sem héldu utan um þig og þótti vænt um þig. Ég fann e-mail frá þér núna áðan síðan í júní 2005 og ég grét um leið og ég sá það. Þú mannst kannski eftir þessum bréfum "svaraðu þessum spurningum um mig" right..? Ég hef aldrei verið jafn þakklát fyrir keðjubréf og nú...það að lesa þetta var algjört æði..sorglegt og ég hágrét og er enn grátandi...en ÆÐI! Takk fyrir að vera þarna alltaf fyrir mig Halla, þú ert besta vinkona sem ég hef og mun nokkurntíman eiga og þú trúir ekki hversu mikið ég sakna þín. Ég hefði dáið milljón sinnum áður en að sjá þig fara á undan mér, þú veist það. Mér þykir svo vænt um allar minningarnar og ég er alltaf að rekast á einhvað sem minnir mig á góðu tímana. Ég sé mest eftir því að hafa ekki átt fleiri myndir af okkur...uppáhalds takkinn þinn var víst delete... Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að setja bréfið hingað inná en ég geri það samt svo stelpurnar geti séð og kannski kíkt hvort þær séu enn með sitt bréf. Þú átt allan heiminn skilið Halla..og ef það átti einhver skilið að fara á þennan fullkomna stað sem við köllum himnaríki..þá ert það þú og ég vona að þú njótir friðarins meðan þú getur því lífið er stutt og ég verð þarna hoppandi ofaná þér áður en þú veist af..! Þú veist ég elska þig alveg í tætlur og þú mátt alltaf koma til mín og kúra...þetta rúm er mikið þæginlegra en það sem við rúlluðum alltaf í Ég bið að heilsa Odda frænda;* bréfið: >****STARTERS***** >1. Where did we meet?: í 3. bekk.. good times hehe.. >2. How long have you known me?: ugh.. síðan í þriðja bekk.. ;* >3. When was the last time we saw each other?: í daag.. >4. Would you call me a friend, acquaintance or good friend?: my best >friend.. love you;*;* >5. Have you ever seen me cry?: já.. en það mun ekki gerast aftuur..=) >6. Your best memory with me is?: sem ég man var sumarbústaðaferðin.. haha >hún var bara snilld!   >7. Your worst memory with me is?: ekkert.. >8. The worst thing I have ever done to you is?: ugh.. ekki neitt held >ég.  >9. Do I have a nice ass? (opposite sex only): ohh.. i want you baby.. >10. Where do you think I will be in 10 years time?: þú átt heima í >risastóru húsi.. og ert algjör partýgjella sko.. og átt 2 börn..hehe >*****WOULD YOU...***** >11. Hug me?: always.. >12. Miss me if I was gone?: i miss u now >13. Listen to my problems?: all the time.. >14. Hug me if I cried?: hvort sem þú grætur eða ekki..;* >15. Be a good friend?: i can be your best friend if you want me to be..=) >*****WOULD YOU...(OPPOSITE SEX ONLY)***** >16. Ever go out with me?: i´m of the market at the moment hehe.. en >ofcorZz..;* >17. If you already have would you do it again?: >18. Kiss me(Really)?: er ég ekki búinaðgera það eðaa?? (man það ekki) >19. Marry me if you could?: >20. Ever talk bad about me if we ever broke up?: never ever..!!! >21. Do you fancy me?: all the time baby.. ohh yeah >*****HOW WELL DO YOU KNOW ME?***** >22. When's my birthday?: 23 sept..=) >23. Take a stab at my middle name?: Huldaa >24. What school do I go to?: Graðaskóla.. hehe. neinei.. garðaskóla >25. Do I have any siblings ~> names??: haha.. já! ingvar..þorvarðurog >ingaa.. hehe.. féll ekki fyrir þessu aftur >26. Who is my most current ex?: svennii.. >27. Who is my best friend(s)?: ÉG!! og helga má líka.. samt bara pínu >28. Who am I crushing on/dating?: ugh..matti?? >29. What footie team do I support?: MAN. UTD!!:  they fucking rock ´n >roll baby!;* >30. Favorite TV show(s)?:C.S.I? og.. everybody loves raymond hehe. nei >það er minn! ha ha >31. Favorite song(s)?: guns dont kill ppl.. rappers do..;*;* >32. Favorite film(s)?: Ace Ventura   >33. Favourite food(s)?: tacco >34. Favourite colour?: vínrauður? >35. What do I want most in the world?: be me haha..lol >*****IF YOU COULD***** >36. Give me a new name, what would it be and why?: Kristín!! því þú HEITIR >það!! ekki kittý.. >37. Hook me up with someone (real), who would it be and why?: >kynþokkafyllsti gaurinn á landinu.. og líka sem er góður, oggerir allt >fyrir þig!;* >38. Do one thing with me what would it be and why?: það er ekkert.. >39. Say one last thing to me what would it be?: dont forget about me..and i >love you.. >40. Ask me one last thing what would it be?: how was it like?? was it >good?? >*****JUST A FEW QUESTIONS***** >41.What do you love about me?: Everything!!!;*;* >42. What do you hate about me?(seriously): hvað við báðar getumverið dáldið >þrjóskar.. >43. What is my best quality?: allt bara..=) mér finnst það.. >44. If you could change one thing about me what would it be?: i would ask >you first. >45. What is your honest opinion of me?: þú ert langbesta manneskja sém ég >þekki!! þú ert bara FULLKOMIN!!;*;* love you
-Kitty sem saknar Höllu sinnar ekkert lítið eftir svona bréf;'***
»
21.10.2008 01:09:38 / kitty
Ég vildi óska þess að ég hefði getað verið með í dag til að halda upp á þennan dag en...
Þú skemmtir þér uppi í skýjunum ástarengillinn minn..;*
 i miss those times :'(
I've Dreaded this day for almost a Year the Memory of the last is the one that I Fear Searching all day for a light in this Shadow No-one said it'd be easy when your Heart is Hollow...
Til hamingju með afmælið †engillinn minn;*** Ég elska þig alveg í rúsinur og lakkrís!
-kitty
Ég elska þig alveg í rúsinur og lakkrís!
»
10.09.2008 05:05:41 / kitty
Afhverju er þetta ennþá svona erfitt Halla? Afhverju græt ég ennþá á kvöldin þegar ég hugsa um þig? Afhverju finn ég ekki fyrir þér lengur og afhverju fórstu? Ég vona að ég gangi aldrei í gegnum það aftur að missa náinn vin, þetta er eins og að sitja með hjartað á milli tannana á riðgaðri sög. Akkúrat núna líður mér eins og það sé búið að skera af mér báða fæturnar, hengja mig upp á snaga og það er verið að bora í hjartað á mér og ég get hreyft horki legg né lið. Þegar ég hugsa til baka, til dagsins eftir slysið. Að ganga inn um skóladyrnar og að fá stelpurnar í fangið, allar jafn ruglaðar og confused...og að spurja mig hvort það sé satt? Mig langaði að fara að hlægja og segja ,,Nei auðvitað ekki, Halla er bara veik heima og kemur á morgun"...en ég þurfti að segja þeim að þú, þú ástarengillinn minn, hafir lent fyrir bíl, 10 skrefum frá því að komast heim í rúmmið...þetta var eitt af því erfiðasta sem ég hef þurft að segja...enda sagði ég ekki neitt allan daginn, grét bara. Þá fengu þær allar skilaboðin um að þetta var raunveruleikinn. Ég mun aldrei gleyma því hversu falleg þú varst, hversu fullkomnar litlu tennurnar þínar voru...sem voru ýmist notaðar í að tyggja eða hengja eyrnalokka í..mannstu? gast sett eyrnalokkinn í gegn og læst munninum...fæ innilokunarkennd bara við það að hugsa um það. Ég þakka guði fyrir það að við höfðum drattast til að búa til þessa heimasíðu...hún er búin að hjálpa mér svo mikið í gegnum þessa tíma. Þegar ég les commentin frá fólki, jafnvel fólki sem ég þekki ekki neitt, þá styrkist ég og veit að ég er ekki ein í þessum heimi. Ég sakna þín svo mikið, og ég veit að ég get ekki fengið þig til baka en ég vildi óska þess að það gæti einhver sagt mér hvert þú fórst, hvað þú ert að gera og hvernig ég kemst þangað. Ég er farin að sjá eftir hlutum sem gerðust á þessum tíma. Ég hef þroskast mikið yfir þessi 2 ár og þegar ég horfi til baka, tek ég eftir litlum og stórum mistökum sem hafa átt sér stað. Ég hugsa oft um Andreu Atla...í jarðaförinni, eftir að við höfðum verið að rífast einhvað...fór ég ekki upp að henni og faðmaði hana, þó mig hafi langað til þess, ótrúlega mikið...ég talaði ekki við hana eftir það og ég sé svo eftir því að hafa köttað alveg á. Ég efast ekki um það að hún fái svona "móment" eins og ég þar sem ég gjörsamlega lamast niður og verð orkulaus úr söknuði og mig langar svo að láta hana vita að hún geti alltaf komið og talað við mig. Ég græt og græt núna þar sem 'Mrs Jackson' er á...ég mun aldrei gleyma göngutúrunum okkar upp í bústað í grímsnesinu, erum víst búin að selja það...en ég mun alltaf minnast þín þegar ég keyri þarna framhjá...Ég sakna þess svo að hlægja eins og við gerðum á hverjum degi. Þegar ég fæ hlátursköst núna, líður mér svo vel en er samt svo hissa eftir á...því það gerist svo sjaldan. Fyrsta hláturskastið var heilu ári eftir slysið...ég held að þau hafi verið um það bil 7-12 síðan þú fórst...í stað 907...1 á dag. Þessi blogg mín eru kannski alltaf eins en þau hjálpa mér svo mikið. Ég er svo þakklát fyrir þessa hugmynd þína að búa til heimasíðu saman, mér finnst þetta vera eina 1oo% leiðin til að tala við þig. Ég veit þú heyrir alltaf til mín og ég veit að ég get alltaf talað við þig, en mér finnst þú geta alltaf lesið þetta. Í kistulagningunni lagði ég bréf í kistuna þína...ég man engan veginn hvað ég skrifaði en ég vona að þú hafir það þarna hjá þér. Ég var að finna um daginn jólakort frá þér frá því um síðustu jólin þín. Þú sagðir að þessi jólasveinn framan á því minnti þig á mig...var frekar móðguð því framan á var skælbrosandi fituklumpur, skríðandi undan kú, og hann hét "Gully Gawk" haha (Giljagaur)...en við hlóum svo oft að þessu korti og ég vildi óska þess að ég finndi svona kort með Stekkjastaur eða Gluggagæji framan á fyrir þig. Forvitinari og labbalengri varstu..ójá ...það sönnuðum við þarna um kvöldið með reglustikunni. Ég fór í ljós um daginn og var búnað vera mikið í sundi svo ég var alveg brún fyrir...svo ég ákvað að fara í 9 mínútúr...en ég gáði nú ekki alveg að því að bikinífarið var skjannahvítt auðvitað...svo ég varð að vitaskuld með tvo risavaxna tómata framan á bringunni á mér og fór að þínum ráðum að bera aloe vera á þetta (og rassinn ofcourse) og viti menn...ég var hvít aftur daginn eftir Vissir alltaf hvað átti að gera við öllu;* En ég kveð í bili og ég sakna þín endalaust mikið og ég vildi óska þess að þú hafir ekki farið svona snöggt. Þú hefðir elskað New Jersey og Six Flags..! Ég elska þig ástarengillinn minn;*
 † Hvíldu í friði † -kitty
»
20.05.2008 05:40:21 / kitty

Halla ég sakna þín svo, það er sem sárt að hugsa út í það að geta aldrei hlegið með þér aftur. Ég er hérna upp í rúmi, stelpurnar að koma á morgun og ég er búin að vera að gráta í 40 mínútur. Ég er með allar minningagreinarnar hérna hjá mér, rifnu buxurnar og bolinn þinn og ég bara trúi því ekki að þú sért farin. Mér líður nákvæmlega eins og mér leið fyrir 2 árum; gjörsamlega í afneitun í algjöru sjokki nema það er eitt sem er öðruvísi. Ég finn ekki jafn sterkt fyrir þér núna. Fyrir 2 árum bað ég þig um að halda utan um mig og ég fann fyrir þér takandi utan um mig en núna er ég að reyna að "let you go" eins og Jóna sagði að ég yrði að gera, það er bara svo erfitt að sætta sig við þetta. Það besta sem hefur nokkurntímann verið gefið mér er nú farið frá mér og það er ekkert sem ég get gert í því. Ég er vön að geta lagað hlutina. Með stelpurnar get ég flogið heim til Íslands ef ég vil...en það er bara ein leið til að komast í snertingu við þig og það er ekki kominn tími yet. Að missa þig var eins og að stinga milljón og einum bitlausum steikarhníf í hjartað á mér, að reyna að sætta sig við það og að taka hnífana úr mér er jafnvel erfiðara og ég þori því ekki ennþá. Ég vil fá þig aftur, ég vil fá Höllu mína aftur. Ég vil getað látið eins og fífl með þér ellt þig niður stigana á Eikó þangað til þú varðst hrædd

Ég sakna þín svo áztarengillinn minn að alltaf þegar ég horfi á andlitið á þér fer ég að gráta. Ég veit samt að þér líður betur núna. Ef himnaríki er fullkomnasti staður í heimi...þá áttir þú mest skilið að fara af öllum góðum stelpum í heiminum! Þú varst alltaf there for me, gat alltaf hringt í þig klukkan 2 á nóttu og stólað á það að þú legðir á þann sem þú varst að tala við í símann * * til að hlusta á mig og mín vandamál. Ég gat alltaf stólað á það að þú beilaðir ekki á mér og hunsaðir mig ekki og ég sakna þess svo að hafa þig hérna við hliðiná mér í rúmminu áztin mín, hvort sem það var til þess að sofa eða mæla tærnar á okkur með reglustiku. Ég vildi óska þess að ég gæti átt einn dag með þér, klukkutíma, korter, mínútu..bara að geta knúsað þig og kvatt þig. Ég var svo 100% viss að þú myndir vakna, ég hefði ekki farið út annars. Fyrirgefðu að ég var ekki þarna fyrir þig síðustu 5 dagana, ég var svo viss um að geta sagt þér hvað þú leyst fáránlega út í þessum plastgalla sem átti að halda hitanum niðri í þér. Ég var svo viss um að getað haldið áfram í leiðinlegum stærðfræði tímum, farið til Boston/Canary saman og farið í hringferðina með þér. Ég vildi óska þess að þú værir hérna til að hjálpa mér með allt saman! Ég elska þig ástin mín!;* Þú verður alltaf lykillinn minn að góðu lífi;**

»
10.04.2008 18:54:02 / kitty
† In Loving Memory †
Thanks for all you've done I've missed you for so long I can't believe you're gone You still live in me I feel you in the wind You guide me constantly
I've never knew what it was to be alone, no Cause you were always there for me You were always there waiting And now I come home and I miss your face so Smiling down on me I close my eyes to see
And I know, you're a part of me And it's your song that sets me free I sing it while I feel I can't hold on I sing tonight cause it comforts me
I carry the things that remind me of you In loving memory of The one that was so true Your were as kind as you could be And even though you're gone You still mean the world to me
I've never knew what it was to be alone, no Cause you were always there for me You were always there waiting But now I come home and it's not the same, no It feels empty and alone I can't believe you're gone
And I know, you're a part of me And it's your song that sets me free I sing it while I feel I can't hold on I sing tonight cause it comforts me
I'm glad he set you free from sorrow I'll still love you more tomorrow And you will be here with me still
And what you did you did with feeling And You always found the meaning And you always will And you always will And you always will
And I know, you're a part of me And it's your song that sets me free I sing it while I feel I can't hold on I sing tonight cause it comforts me
Ég Elska Þig Áztarengillinn minn;**
 Mér líður hálf-asnalega, mér líður illa fyrir að hafa gert Matta þetta en ég veit að þetta var the right thing to do. Ég vildi óska þess að þú værir hérna hjá mér til að segja mér hvað ég ætti að gera, þú hafðir nú reynslu í þessum málum. Mér finnst svo skrítið að geta ekki hringt í þig og komið yfir. Ég man þegar þú varst einhvað að tala um að mamma þín væri að pæla í að flytja til Danmörku og ég sagðist frekar ætla að ættleiða þig því þú myndir sko ekki fara frá mér! Svo er ég hérna sjálf flutt, sjálfviljug, til New Jersey og næ engum tengslum. Þegar ég var hérna í 06, þá fann ég fyrir þér og ég fann þig halda utan um mig og halda mér á lífi, en núna finnst mér ég ekki ná sömu tengslunum og finnst mér hafa gleymt svo miklu. Þó ég muni allt um þig þá eru mómentin smám saman að gleymast og ég vil ekki að það gerist Halla. Þú varst besta vinkona sem nokkur manneskja gæti átt. Ég man að eftir að þú fórst frá okkur ákvað ég að vera duglega að hitta mömmu þína því að þegar ég var hjá ykkur leið mér vel og þið tvær voruð eins og ég og mamma; góðar vinkonur og töluðuð saman um allt. En svo eftir því sem tíminn leið þá varð alltaf erfiðara og erfiðara að fara sjálf uppeftir og hitta hana og ég skammast mín svo fyrir það því þetta er nú bara mamma þín. Hún minnir mig svo á þig núna og ég veit að hún var fyrirmyndin þín. Hún er svo sterk að ég bara veit ekki hvernig hún fer að þessu...að þurfa að jarða sitt eigið barn, og ekki bara barn heldur Höllu mína, hún er hetja hún mamma þín og hún má sko vita það! Ég get ekki fundið neitt orð nógu sterkt og mikið til að lýsa því hversu mikið ég sakna þín Halla!...Ég er svo oft að upplifa hluti sem hefðu orðið týpískt VIÐ móment og ég hugsa bara hvað þetta hefði verið mikið skemmtilegra með þér. Ég gleymi aldrei sumarbústaðnum og ég fór þangað um daginn með Matta og sýndi honum hliðin og gat ekki að því gert en ég bara fór að hágráta! Ég myndi gera hvað sem er til að fá eitt knús og fá að tala við þig. Fyrirgefðu hvað ég sagði þér aldrei hvað mér þótti ofboðslega vænt um þig Halla, þó þú hafir fundið það og allt það, fyrirgefðu mér hvað ég sagðist aldrei elska þig...mér þykir enn svo óendanlega vænt um þig og elska þig svo mikið að þú trúir því bara ekki. Maður fattar ekki hvað maður hefður fyrr en það er farið og þetta er staðreynd því ef það væri það síðasta sem ég segði myndi ég segja þetta við þig, bara ef þú værir hérna og heyrðir til mín. Ég vona að þú hafir fengið og tekið með þér bréfin okkar Möggu og Auðar. Fyrirgefðu hvað mitt var mikið styttra en þeirra bréf, ég var með ritstíflu eins og svo margoft áður. Þegar ég ætla að sitjast niður og skrifa ljóð um þig, þá finn ég ekki réttu orðin, það er ekki til neitt orð sem lýsir þér eins og þú varst. Góðhjörtuð, falleg með lítið krúttlegt kartöflunef, freknurnar eftir ljósin og liðaða rauða strípaða hárið, dökkbláu augun sem ég öfundaði þig svo á eins og þú værir með litalinsur alltaf, fullkomu plokkuðu augabrúnirnar og flamingóa fótleggirnir Tærnar sem voru 1 cm minni en mínar...mannstu eftir reglustikukvöldinu!? Við lágum uppí rúmi með 20cm langa reglustiku að mæla líkamspartana okkar kl 3 um nótt! Ég sakna þess að gera einhvað svona og fatta svo morguninn eftir hvað það var fáránlega asnaleg, en samt fyndin, hugmynd! Ég leit svo upp til þín og ég vildi óska þess að ég hefði getað sagt þér það, fyrir utan CS sem ég náði aldrei! Ég spreyja Sweet Temtation um allt herbergið mitt til að finna einhverja lykt sem minnir mig á þig, Upp í skáp eru götóttu ONLY gallabuxurnar sem urðu alltaf götóttari með deginum þegar þú varst að fykta og kroppa í þeim í stærðfræði tíma. Upp í skáp er líka hlírabolurinn með Betty Boop framaná sem þú svafst alltaf í og svo líka glósublað um Tákn og Minni úr íslensku...með stjörnuskriftinni þinni sem mér fannst alltaf svo krúttleg...hver man ekki eftir málfræði hjá Rósu snigli í Garðaskóla. Hér er ég, sitjandi inni, hugsandi um þig með tárin í augunum í staðinn fyrir að læra úti á trampólíni. Við fengum það sumarið eftir að þú fórst, vildi að þú hefðir prófað það Ég er búnað eignast fullt af hlutum sem þú ert ekki búin að sjá en ég nota enn sama bleika-Tigi-dildóinn í hárið...margir sjá BedHead og hugsa um mig, en þegar ég sé það hugsa ég um þig. Þú og mamma þín áttuð svo flotta hluti sem mér fannst spennandi. Sléttujárnið sem ég á núna, kynntist ég hjá þér, millistykkin sem ég er alltaf með, kynntist ég hjá þér. Þú varst sú fyrsta sem ég fór með í ljós. Talandi um ljós, mannstu þegar við laumuðumst úr sælunni að strætó skýlinu til að mamma þín myndi ekki sjá en við urðum samt að fara til hennar í vinnuna því ég var ekki með strætómiða...klúður!? Ég man þegar við vorum einu sinni að gista heima hjá þér og við vorum með allt slökkt og ég var ný komin með Samsung símann og var að fikta einhvað með ljósið og svo fékk ég sms frá Auði um að hún væri ný komin úr vaxi og að henni sveið svo í lappirnar að hún var að deyja haha og við gátum ekki sofnað því við vorum að hlægja svo mikið og ímynda okkur hana á stofunni alla nóttina. Mannstu eftir leiknum okkar frá því í 4-5 bekk..? Með flóðhestinn og ljónið og rauða og gula sportbíl hans Unnars og mini-fiskabúrinu, hvernig við röðuðum kubbum útum allt og bjuggum til hús fyrir þá, eins 8 ára-legt og það sándar, gátum við alltaf farið í þennan leik án þess að finnast það einhvað lame. Mér fannst mömmu þinnar herbergi alltaf flottasta herbergið í húsinu á Sunnuflöt enda lékum við okkur alltaf þar inni. Heimalyktin þín, finnst mér vera öðruvísi núna en þá, en samt góð. Við komum í heimsókn til þín áður en ég flutti aftur út, þegar það voru akkúrat 2 ár liðin og sáum mömmu þína og Unnar. Vá hvað Unnar er orðinn stór og flottur, að fara að fermast og allt. Ég get ímyndað mér okkur gera hann reddí inn í herbergi, setja gel og svona í hárið á honum og dúllast með hann einhvað eins og ég geri með Ingvar núna.
 Þegar ég horfi til baka, finnst mér þessi tími, í kringum jarðaförina og heimsóknirnar á spítalann og allt það, mér finnst hann ekki meika neinn sence. Ég var svo djúpt sokkin í sorg og ég sá ekki hvernig heimurinn gat haldið áfram að snúast. Ég gat ekki ímyndað mér að ég ætti einhverntíman eftir að eignast jafn góða vinkonu og þig og það hefur enn ekki skéð. Við stelpurnar erum enn duglegar að hittast og svona en það er ekki eins án þín. Helga er búnað vera svo góð og hughreystandi við mig og ég reyni að segja henni að mér þyki vænt um hana og allt það sem ég vildi að ég hefði verið duglegari að segja við þig. Hún hefur alltaf verið mjög góð vinkona mín en þú og ég vorum alltaf mikið nánari. Í Vatnaskógi, í kapellunni eftir vitnisburðarathöfnina, fórum við upp að Ármanni og máttum láta biðja fyrir þeim sem okkur þætti vænt um og svona og ég lét hann biðja fyrir þér og bað hann að hjálpa þér yfir. Þar sá ég hvað Helga var góð og æðisleg vinkona, því hún lét Ármann biðja fyrir og hjálpa Kittý. Þá í rauninni fattaði ég hvað ég var með í höndunum; æðislega vinkonu sem hugsaði til mín á svona stundu og ég hefði ekki verið jafn sterk og ég er í dag ef það væri ekki fyrir hana. Ég veit alltaf að ég er velkomin yfir til hennar ef mér vantar einhvað að tala og ég hlakka svo endalaust að fá hana og Sóley yfir til mín. Þær eru báðar svo æðislegar á ólíkum sviðum. Þú veist nú hvernig Sóley er, hugsar ekki áður en hún framkvæmir og útkoman verður stundum bráðfyndin. Alltaf hægt að hlægja nóg með henni og hún er líka alltaf tilbúin að hlusta. Þú munt alltaf vera límið sem heldur okkur stelpunum saman, við deilum allar þessari sorg og þetta mun alltaf tengja okkur. Mannstu upp í bústað þegar við marsheruðum um göngustígana fram og til baka að leika það hvernig Sóley labbar! Ég sýndi Sóley það um daginn, án þess að í rauninni fatta að ég var að gera pínu grín af henni, og hún tók því alls ekkert illa, hló bara. Það er það sem var svo æðislegt við ykkur tvær. Maður gat alveg grínast án þess að móðga ykkur einhvað...ég veit að ég reyni að vera þannig, tekst ekkert alltaf en oki . Ég sakna þess svo að tala við þig bara um allt og ekkert, sakna þess að hanga í tölvunni og tala við þessa og hina mannsveskju á msn bara að bulla í þeim og hlæja svo manna mest. Fyrirgefðu þetta með símann, ég var bara einhvað pirruð og vona að þú hafir nú verið ánægð með hvíta nýja. Ég dreymdi lítinn draum í morgun og sá þig vera að senda sms eða einhvað í blá-græna nokia símanum og man að ég vaknaði og sá svo eftir því að hafa rústað hinum. Þú trúir ekki hvað mér leið illa eftir þetta þó þetta hafi ekkert verið mikið mál og ég er glöð yfir að hafa náð að gefa þér nýjan í afmælisgjöf því þessi blá-græni var ömurlegur. Mannstu þegar við spreyjuðum candy-ilmvatninu á viftuna og þá varð allt út í candy-lykt í herberginu þínu? Ég gerði það alltaf þegar ég var að vinna í Mjóddinni...fékk hrós á það í hvert skipti sem það kom kúnni inn...leit bara upp til þín og brosti Ég vildi óska þess að við hefðum gert meira í því að taka myndir af okkur, því ég á ekki fleiri en 6 myndir af okkur saman, frá því í webcaminu...þú eyddir þeim öllum út. Einu myndirnar sem ég á eru í höfðinu mínu og ég er ansi hrædd um að þeim fari að fækka með árunum Ég Elska Þig áztarengillinn minn og farðu vel með þig áztin mín;*** Þú verður alltaf bezta vinkona mín og þú verður alltaf hjá mér!!
-kitty sem elskar þig í tætlur;**
»
15.02.2008 00:42:06 / kitty
20.10.90 † Halla Margrét † 23.02.06
 Þau sem þekktu engilinn minn brosa eflaust næst þegar þau heyra þetta;
Where is the moment we needed the most You kick up the leaves and the magic is lost They tell me your blue skies fade to gray They tell me your passion's gone away And I don't need no carryin' on
You stand in the line just to hit a new low You're faking a smile with the coffee you go You tell me your life's been way off line You're falling to pieces every time And I don't need no carryin' on
Because you had a bad day You're taking one down You sing a sad song just to turn it around You say you don't know You tell me don't lie You work at a smile and you go for a ride You had a bad day The camera don't lie You're coming back down and you really don't mind You had a bad day You had a bad day
Will you need a blue sky holiday? The point is they laugh at what you say And I don't need no carryin' on
You had a bad day You're taking one down You sing a sad song just to turn it around You say you don't know You tell me don't lie You work at a smile and you go for a ride You had a bad day The camera don't lie You're coming back down and you really don't mind You had a bad day
(Oooh.. a holiday..)
Sometimes the system goes on the blink And the whole thing turns out wrong You might not make it back and you know That you could be well oh that strong And I'm not wrong
(yeah...)
So where is the passion when you need it the most Oh you and I You kick up the leaves and the magic is lost
Cause you had a bad day You're taking one down You sing a sad song just to turn it around You say you don't know You tell me don't lie You work at a smile and you go for a ride You had a bad day You've seen what you like And how does it feel for one more time You had a bad day You had a bad day

-Kittý
»
16.01.2008 01:16:51 / kitty
Shadow of the Day- Linkin Park Tilveruna og nátúruna er efitt að skilja. Einn dag tekur maður öllu sem sjálfsagðan hlut, þann næsta situr maður á rúmgaflinum og reynir að pæla í því hvert og afhverju þessir hlutir fóru frá manni. Hver er tilgangurinn með lífinu ef það sníst um það að eignast og missa, eignast og missa og missa meira..? Heimurinn er skrítið fyrirbæri. Þú finnur fyrir þeim sem þú hefur misst andlega en getur svo ekki snert þá. Getur sagt þeim allt en ekki vitað hverju þau svara. Þú getur aðeins ímyndað þér hvað þau segja og í leiðinni litið á sjálfa þig sem geðsjúkling. Það að hafa haft svona góðhjartaða og æðislega manneskju í lífi mínu er mér svo kær minning en þegar ég hugsa um þær minningar kemur alltaf þessi eina svarta minning sem bindur enda á það góða. Dauðinn. Sama hvað ég hugsa um hvað dauðinn geti ekki aðskylt okkur kemst ég ekki yfir þá staðreynd að geta aldrei kúrt með þér eða sofnað yfir Hybrid Theory eða upplifað þessi móment aftur. Minningarnar af hliðunum og Grímsnesinu koma svo oft upp í huga mér en eins og ég sagði þá um leið og ég hugsa um þessi góðu móment sem við áttum saman, enda ég alltaf í táraflóði.
 Ég var í því að fatta að það eru komin núna 11 mánuðir og nokkrar klukkustundir síðan þú lentir í slysinu. Ég lá hérna andvaka og var að horfa á Englar Alheimsins og man þegar þú varst að reyna að segja mér frá bókinni í íslenskutíma daginn fyrir próf því við vitum nú öll hvernig ég stend þegar kemur af því að lesa. Fólk hefur núna alltaf sagt við mig hvað þú áttir ekki skilið að deyja og að þú hafir farið í blóma lífsins og að þetta hafi ekki verið rétti tíminn fyrir þig. En málið er að það er Aldrei rétti tíminn til að kveðja og ég hugsa þetta þannig að þú áttir það mest skilið af öllum jarðarbúum að deyja. Þeir sem deyja fara til himaríki þar sem allt sem þú óskar þér gerist, himnaríki er paradís í skýjaborg. Það átti enginn það meira skilið að fara á þennan fullkomna en þú Halla ástin mín! Höllu þótti vænt um alla, hún hugsaði vel til allra þrátt fyrir að hafa sína daga eins og allir. Við fórum einu sinni í fýlu út í hvor aðra, man ekki út á hvað það gekk en eftir einn dag grenjuðum við "fyrirgefðu fyrirgefðu" við hvor aðra og ég man að í þennan eina dag var ég í algjöru rusli því Halla var sú sem ég óð yfir þegar ég var pirruð út í aðra og hún var alltaf þarna til að hlusta og gefa ráð. Föstudagar í Garðaskóla voru bestir! Búnar snemma, tókum strætó út á Álftanes, settum LP á fóninn og rauluðum saman uppí rúmi með Jalla andfúla við endan á rúminu og sofnuðum svo öll 3 til svona 6. Það sem Höllu fanst svo gott..var að gilla aðra..! Hún var með algjöran kæk meðan við horfðum á imbakassann eða rauluðum upp í rúmi að taka hendina á manni og byrja að gilla, tótal heaven!

Halla mín á skilið Oscarinn fyrir hetjuskap! Þann 15. febrúar 2006 lenti ástarengillinn okkar í bílslysi. Hún lá þarna upp á gjörgæslu í 8 daga og barðist fyrir lífi sínu. Ég gleymi aldrei þessu kvöldi. Að koma heim eftir æfingu og heyra þessar fréttir...að besta vinkona mín hafi lent í bílslysi...þetta var svo óraunverulegt! Við fórum strax upp á spítala, ég og mamma, og mamma þín tók á óti okkur. Ég get ekki ímyndað mér sársaukann sem hún hefur verið að ganga í gegnum...því ég veit að samband Margrétar og Höllu var á sama stigi og sambandið milli mín og mömmu..! Það að þurfa að kveðja barnið sitt á ekki að vera hægt! Kveðja á bara ekki að vera til yfir höfuð, en heimurinn er skrítið fyrirbæri og maður getur ekki breytt því liðna. Sárin breytast í tár og safnast saman í polli en pollurinn stækkar og stækkar uns til verður lækur. Lækurinn vex og vex uns til verður á. Áin flæddi yfir bakka sína þann 23. febrúar tvöþúsund og sex og það lægjar ekki í veðrinu innra með mér fyrr en það hvessir hjá mömmu.

-kitty
»
04.12.2007 09:45:27 / kitty
Elsku Halla, áztarengillinn minn, í dag frétti ég að litli drengurinn sem lenti í slysinu í Keflavík hafi látist. Ég get ekki útskýrt hversu mikið ég finn til með fjölskyldu hans og þeim sem komu nálægt honum. Mig langaði að biðja þig að taka vel á móti honum og passa hann, því jú hann var nú bara 4 ára, eins og Oddi Podd þegar hann dó. Maðurinn sem keyrði á hann á skilið að sökkva djúpt í sárin og dvelja lengi í klefa því þetta var ekki svo mikið sem slys. Sami maður ætlaði að keyra vísvitandi á nágranna minn sem var svo heppinn að ná að rúlla sér undan. Þessi maður hafði þá farið upp í bílinn hans og náð í veskið og allt sem var varið í. Ég bið þig nú samt að hjálpa manninum að gefa sig fram áður en fleiri þurfa að týna lífi sínu því hann á greinilega einhvað bágt. Enginn heilbryggður og venjulegur maður gerir svona vísvitandi og enginn er óhulltur á götum borgarinnar með svona menn ekki í haldi. Viltu hjálpa fjölskyldu drengsins í gegnum sorgina, viltu hjálpa þeim að komast yfir reiðina, því ég veit svona nokkurnvegin hvernig þeim líður. Auðvitað förum við í gegnum sömu sorgarskrefin, bara á mismunandi tímum. Reiðin, sorgin, afneitunin og þunglyndið... Ég hef verið í afneitun síðustu 22 mánuðina...og er enn ekki að trúa því að þú sért ekki hérna lengur. Mér finnst ég hafa séð þig og snert þig bara í gær. Þú varst svo nær mér og ég finn ennþá hlýjuna frá þér og stundum ímynda ég mér holuna í rúminu mínu og rúlla mér til hliðar...en það er ekkert sem stoppar mig hinum megin því þú rúllar ekki á móti. Ég get ekki hætt að velta því fyrir mér hvar þú værir núna, hefðiru ekki týnst?! Væriru hjá mömmu þinni og væruð þið mæðgur fluttar til Danmerkur...eða væriru í Verzló, MH eða MA kannski? Maður má samt ekki hugsa svona því þá verður þráin svo ofboðslega mikil að fá þig aftur! Ég get ekki sætt mig við það að ég geti ekki galdrað þig til baka. Ég get ekki sætt mig við það að þú komir aldrei aftur hingað niður sem rauðhærða vinkona mín sem allir hættu að anda í kringum. Ég bið þig að fara aldrei frá mér Halla...ég get þetta ekki án þín! Síðan þú fórst finnst mér ég vera minni manneskja en ég var. Ég er ekki sama manneskjan, er ekki eins fjörug eða eins opin og sjálfsálitið hefur snarminnkað! Nú segi ég eins og þú...ég bið þig! Ekki skilja við okkur, vertu hjá okkur og vertu hjá fjölskyldu litla drengsins í Keflavík! Ég elska þig og mun alltaf gera Halla mín;* Hafðu það gott þarna uppi...I´m on my way! -Kittý 
»
20.10.2007 13:05:23 / kitty
20.10.07 Þennan dag, fyrir nákvæmlega 17 árum, fæddist kraftaverk inn í þennan grimma heim. Guð gaf okkur yndislega dóttur, nágranna og bestu vinkonu sem snerti svo margar sálir. Hún var svo seinna skýrð Halla Margrét, sem hún var nú ekkert voða ánægð með á sínum seinni árum ! Í dag hefði hún Halla mín orðið 17 ára og ég vildi óska þess að hún hefði lifað til að upplifa það; Bílprófið, öku"torture"skólann og allt sem fylgir því að verða 17. Til hamingju með afmælið elska ástin mín! Ég vildi óska þess að ég gæti knúsað þig núna og komið í heimsókn...veit það yrði kannski ekkert djammað, veit það yrði kannski ekkert partý heldur kannski bara sleepover eða one-on-one time en það er nógu gott fyrir mína litlu sál. Ég sakna þín svo mikið ástin mín að þú trúir því bara ekki ! Það eru 19 mánuðir og 5 dagar síðan þú fórst og ekkert af þessu hljómar nógu raunverulegt til að vera satt! Ég veit að þeir sem hafa gengið í gegnum þetta skilja okkur; Þetta gerðist aldrei, þú ert ennþá hérna, þú fórst aldrei og ég hitti þig í gær! Við kunnum öll Eminem lögin utan að og sofnum enn við Hybrid Theory, þú komst með okkur hringinn og hittir Matta auðvitað á undan mér Ég er einmitt hjá honum núna svo fyrirgefðu mér að geta ekki verið með stelpunum að halda upp á þennan sérstaka dag en við Matti ætlum bara að borða nammi og verða feit hérna í staðinn fyrir sunnan Ég get þó glatt þig með einu...ég er búin að vera í SiMs hérna á fullu og downloadaði IcyTower hérna um daginn Er hreinlega búin að vera í HMÁ maraþoni síðan ég kom hingað! En ég sakna þín alveg ótrúlega ástin mín og vona að þú hafir það gott þarna ástin mín;* Borðaðu nú yfir þig af nammiböngsum og hvítu súkkulaði og ég mana þig í prumpukeppni eftir lakkgrísátið Elska þig;** -Kitty
»
23.08.2007 23:19:06 / kitty
Elsku Elsku ástin mín...!! Hér sit ég í tárum við tölvuna og sá útfararspjaldið þitt og BF hálsmenið og fann sterklega fyrir þér. Ég gerði allt til að fá þig aftur Halla ástarengillinn minn! Ég græt mig í svefn svo oft að þú trúir því ekki. Daginn sem slysið var er dagur sem ég mun aldrei gleyma. Ég og Sóley vorum að labba á æfingu og sáum ljósmyndara á slysstaðnum og héldum að þetta væri bara þessi klassíski árekstur; "Jónsi að rekast utan í einhvern" sögðum við. Eftir æfinguna löbbuðum við svolítið rólega heim, veit ekki afhverju, en ég fór upp til mömmu og hún sýndi mér mynd af bílnum og slysastaðnum. Hún sagði "Halla" og ég gjörsamlega sturlaðist! Ég lagðist á gólfið og ætlaði að tæta hárið af hausnum á mér, ég sver! Á einhverjum fáeinum sekúntum flassaði 3-10 bekkur fyrir augum mér og ég sá ekkert nema þig ástin mín, þú að hjálpa mér, þú að hughreysta mig og við að mæla líkamsparta með reglustiku, rúlla saman á bleiku dýnunni og alla handboltaleikina okkar saman. Ég grét og grét og grét og við mamma fórum klukkan rúmlega 11 upp á gjörgæslu. Mér var alveg sama þótt það væri seint, ég vildi fara strax. Mamma þín tók á móti mér og ég held við höfum knúsast í meira en 7 mín.! Ég hef aldrei fundið til í hjartanu eins mikið og þá. Að sjá mömmu þína svona algjörlega niðurbrotna, að vonast til að halda í barnið sitt, vonast til að geta bjargað rauðhærðu stelpunni sinni. Öll þín nánustu voru þarna í aðstandenda-herberginu...allir að biðja fyrir þér og því að þú myndir þrauka þetta af. Ég fékk að fara inn til þín og sjá þig. Því gleymi ég ALDREI! Blá marin, þjöppuð í plast til að halda þér kaldri og með arabaklút eða þessháttar um hausinn, hárið útum allt en samt svo ótrúlega falleg að hver sem er myndi falla fyrir þér, just like that. Það voru slöngur í æðum út um allt, jafnvel á stöðum sem ég hélt að það væru engar æðar. Ég þorði varla að halda í þig eða snerta þig í hættu við að eyðileggja einhvað, þú þekkir okkur nú..! Ég var þarna inni í víst einhvern svaka tíma sem leið eins og mínúta í mínum augum. Tíminn leið alltaf svo hratt hjá okkur, það var aldrei leiðinlegt að vera með þér ástin mín! Ég ætti alfræðiorðabók af gullkornum ef ég skrifaði það allt niður. Ég er enn að lenda í aðstæðum sem væri svo týbíkst Við Tvær..! Man að það fyrsta sem ég lennti í eftir að missa þig var þegar ég missti eina dömubindið sem ég átti ofaní klósettið í skólanum, fór betlandi um hjá stelpunum, en jújú svo gerðist það aftur . Fékk rautt rassgat eftir ljósatímann með Nínu um daginn, hver man ekki eftir því með þér og flotta milljón kr-kreminu 
Ég hef aldrei verið neitt fyrir að tala mikið um sorg mína en ég verð þó að segja að starfið með Ármanni upp í kirkju, hefur án efa hjálpað bæði mér og vinkonunum mjög mikið og hjálpað okkur líka að skilja hvor aðra. Andlát þitt hefur tengt okkur görlís-hópinn saman. Sumir segja að við eigum ekki neitt sameiginlegt, en við eigum Þig sameignilegt og það er eitthvað sem við munum alltaf vera nánar fyrir. Daginn eftir slysið ákvað ég að fara í skólann og hitta þær, stelpurnar mínar. Þegar ég kom inn um dyrnar kom Sóley upp að mér og spurði hvort það væri satt. Ég kom ekki upp orði, táraðist bara og var með kökkinn í hálsinum til að reyna að harka að mér. Þennan dag mætti ég ekkert í tíma nema í stærðfræði þar sem þú sast við hliðina á mér alltaf. Ögmundur byrjaði að tala um hallatölu...ég fór út. Ég mætti ekki í tíma næsta dag heldur, mætti aldrei í stærðfræði103 eftir þetta. Ég flutti mig yfir og fékk þitt pláss í aukatímunum. Tók þetta allt fyrir þig. Ég borða fyrir þig, skemmti mér fyrir þig, hreifi mig fyrir þig. Ég lifi fyrir þig Halla, ástin mín, ég græt fyrir þig. Ég held áfram að semja og teikna fyrir þig. Ef það væri ekki fyrir þig væri engin Kittý til. Þú mótaðir mig, þú lést mér líða vel og ég veit að ég gat og get enn treyst þér 100%! Ég hef aldrei á æfinni fundið jafn mikið traust og frá þér. Við vorum óaðskiljanlegar Halla, afhverju þurfti því að linna? Koddinn minn er blautur af tárum Halla, sængin mín er blaut af tárum og stundum óska ég þess að vakna við hliðina á þér, en ekki í mínu rúmi. Vakna aldrei upp frá ljúfum draumi, hjá þér og hjá Odda og hjá Perlu, ömmu Öddu og Svani afa. Vakna hjá Kötu frænku og Pétri kanski?
  Það er ein manneskja sem hefur hjálpað mér alveg ótrúlega mikið í gegnum þetta fyrir utan Matta og mömmu..! Ég vona að þú sért að lesa þetta Helga því þú ert sú manneskja, ég veit ég get alltaf reytt mig á þig og ég veit ekki hvar ég væri án þín. Mamma er alltaf að segja mér að halda í þig og ég hef gert það hingað til og sé nú hvað þú ert mér mikils virði. Ég fattaði hvað ég var með í höndunum í Vatnaskógi. Í kapellunni eftir vitnisburðarathöfnina létum við biðja fyrir þeim sem okkur þótti vænt um og ég bað Ármann um að blessa Höllu og allar hennar minningar og okkar stundir saman. En þú...þú lést meðal annars biðja fyrir mér! Mér hefur aldrei liðið jafn sérstök! Ég veit að það sem ég er með í höndunum er frábær og traust vinkona sem mun aldrei fara frá mér, hvað sem bjátar á! Ég elska þig fyrir það..!;*
»
10.05.2007 15:00:27 / kitty
Why?
Now that you’ve drifted away from
me
I stand on the edge of a bridge and I
see
Your reflections in the waterfall, you’re
smiling
Smiling
cause you’re hurt no more, not
crying.
I see you try to tell me
something
But the words dont come out that
clearly,
I dont understand what you try to
say
But then I
see the words: “ I wanted to
stay”
I fall to me knees and I start to
cry
Pray to God and ask him
why
Why the hell you and
why the hell me
Beg him to
take us out of this
misery
Do I need to
take my own life to touch
you?
Do I need to kill myself to feel
you?
Why can’t you just come back to us now, it's
easy
Turn back time baby come
back to me
I lost my life when I lost
you
You were my life and I lost
you.
I miss you so
and I will forever
My door is open for you
whenever.
höf: Kittý þín Bjarna
;**

-kitty

»
17.03.2007 14:08:19 / kitty
Afhverju erum við látin fara í gengum svona lagað? Allt
sem ég heyri er að ég sé svo sterk og að Guð láti mann ekki ganga í
gengnum einhvað sem maður ræður ekki við! Ég Ræð EKKI við þetta!!
Að missa þig elsku Halla mín er eins og að skera meira en
helminginn af hjartanu mínu í burt! Ég fæ þann part aldrei til
baka, það getur ekkert og enginn komið í staðinn fyrir
þig! Sama hvað ég reyni get ég ekki hætt að hugsa um það
afhverju í andskotanum ég var að fara þarna út!! Ég hefði getað
verið hjá þér helmingi lengur en samt fór ég!! Ég trúði ekki að þú
myndir fara bara sísvona...án þess að kveðja okkur allar! Ég fór út
til þess að hafa gaman fyrir okkur báðar, fór út á bretti og
minntist þess þegar við fórum okkar fyrstu og lengstu ferð í
Bláfjöllum...
Ég
hugsa til þín og um þig á hverjum einasta degi Halla! Það er ekki
einn dagur sem líður sem ég geri einhvað sem er svona tíbískt
VIÐ...og ég get ekki annað en að falla niður og grenja úr mér
líftúruna. Ég sakna þín svo Halla ástin mín...þótt það sé komið
ykir ÁR síðan trúi ég þessu ekki ennþá. Finnst ég hafa séð þig bara
í gær. Finnst það vera bara sólahringur síðan þú drapst í mér
bragðlaukana með súrasta brjóssykri í heimi! Kannski hefði það
verið betra ef ég hefði í rauninni drepist og verið með þér
núna!
Það
er svo skrítið að horfá Útfararbæklininn með mynd af Höllu minni
framan á! Finnst það ekki réttlátt að Guð skuli taka svona
yndislega manneskju frá blóma lífsins, finnst það ekki réttlátt að
hann skuli taka þig frá mér! Stundum rétti ég fram hendurnar í von
um að þu komir og knúsir mig! Í öll þau skipti finn ég fyrir
andadráttinum þínum og góðu heimalyktinni sem þér fannst svo vond!
Finn að þú vilt koma til baka og vera með okkur en segjir mér að þú
getir það ekki!
Ég
fyrirgef mér aldrei að hafa farið uppí þessa flugvél Halla! Fá að
sjá þig og vera hjá þér þegar þú þurftir á mér að halda, vera hjá
þér meðan þú lást þarna í hálfgerðu frauðplasti til að halda
bólgunni niðri!
Þegar ég kom uppá spítalann klukkan hálf 12 15. febrúar
'o6 tók mamma þín á móti mér og ég grenjaði svo mikið í
hálsakotið hennar! Hún leyddi mig til þín eftir þetta
hálftíma faðmlag og þarna lástu, með einhvað hvítt rappaði um
hausinn þinn og hárið útum allt, hálf fjólu-gul í framan og í
galla frá "fokkjú"-spítalanum, og með allar þessar slöngur
í hendinni og öll þessi tæki í kringum þig. Ég heyrði í
tæki sem ég kannaðist vel við, það mældi hjartsláttinn þinn. Ég get
ekki ýmindað mér hvernig það hefur verið fyrir mömmu
þína að horfá beina línu og hlustá stöðugt bíb hljóð!
Ég
get ekki sagt bless Halla! Get ekki sætt mig við að geta ekki farið
til þín án þess að þurfa að fara frá öllum hinum! Hvað á ég að gera
Halla!! Ég vil laga þetta, ég vil fá þig aftur... hvað á ég að
gera 
»
Síður: 1 2 3 4
|
Heimsóknir
Í dag: 13 Alls: 52123
Dagsetning
9. febrúar 2012
†Halla Margrét†
Fyrir 1081 dögum
†3 Ár†
|